Fleiri myndir / More pics
More pics on my picture site. See folders "Egypt" and"Tanzania"
http://public.fotki.com/gunnigunn/
Jæja síðustu dagar á Zanzibar voru rólegir – sól, fótbolti og afslöppun. Svindlaði mér inn á 5 stjörnu resort svona til að slappa aðeins betur af haha. Í stað þess að fara tilbaka til Arusha og fara landleiðina til Nairobi ákvað ég að fljúga beint frá Zanzibar til Nairobi, þýddi aðeins lengur bið á flugvellinum en hvort sem það eru 12 eða 14 tímar skiptir nú ekki svo miklu máli. Semsagt 14klst á flugvellinum í Nairobi. Hitti fínt fólk sem ég spjallaði við í 5klst þar sem það var einnig að bíða eftir flugi. Sjónvarp á einum veitingastað þar sem við horfðum á íþróttir. Náði 2klst í svefn á hörðu gólfinu fyrir flugið. Annars er flugvöllurinn í Nairobi ágætur og svosem ekkert slæmt að eyða tíma þar. Átti næturflug til Kairó þannig að ekki mikið meira sofið þá nóttina. Kom til Kairó um morgun og framundan var 17klst bið á flugvellinum. Nennti ekki að redda vegabréfsáritun og fara niður í bæ, enda búinn að sjá það sem ég vildi sjá og gat svosem alveg hangið hvar sem var. Eða svo hélt ég. Flugvöllurinn í Kairó er einhver sá lélegasti alþjóðaflugvöllur sem ég hef komið á! Loftkælingin var svo öflug að hún hélt 18 stiga hita á svæðinu. Veitingastaðir voru annaðhvort lokaðir eða voru ekki með mat á boðstólnum vegna Ramadan. Ég hellti mér yfir einn þjóninn og einnig upplýsingaborðið á staðnum. Þeir voru ekki mikið að hugsa um þá sem ekki fasta á Ramadan og og gleyma þeirri litlu staðreynd að þetta er alþjóðaflugvöllur!!! Lítill svefn og enginn matur er ekki góð blanda og varð til þess að ég tók það hressilega út á fyrrnefndum starfsmönnum. Fór svo í gegnum Mílanó á leið minni til Stokkhólms. Var eina nótt þar hjá bróður mínum áður en ég kom heim í það sem flugstjórinn kallaði frábært veður (hálfskýjað og 12 stiga hiti). Held ég hafi misst smá lit þegar hann sagði þetta. En það er fínt að vera kominn heim og búinn að fara í heita sturtu eftir 5 vikur af köldum sturtum.
The last days on